Samhliða Stóru upplestrarkeppninni fer fram smásagnasamkeppni meðal nemenda í 8. – 10. bekk í Hafnarfirði. Fjölmargar sögur bárust í keppnina í ár. Viðfangsefnið var frjáls, þ.e. höfundar máttu skrifa um hvað sem er. Samhliða Stóru upplestrarkeppninni fer fram smásagnasamkeppni meðal nemenda í 8. – 10. bekk í Hafnarfirði. Fjölmargar sögur bárust í keppnina í ár. Viðfangsefnið var frjáls, þ.e. höfundar máttu skrifa um hvað sem er. Birta Jóhannsdóttir, nemandi í 8. bekk, gerði sér lítið fyrir og vann keppnina í ár með söguna Óþolandi óþol. Í stuttu máli fjallar sagan um Klóa og Gotta. Klói sér um að auglýsa kókómjólk og Gotti er með ostinn. Svo óheppilega vill til að þeir eru með óþol fyrir mjólk og þá vandast málið. Við óskum Birtu hjartanlega til hamingju með þennan árangur. Framtíðar rithöfundar hér á ferð. Hér má nálgast söguna Óþolandi óþol. Deila Tísta