Nám og kennsla

Frístundaheimilið Selið

Frístundaheimilið Selið er fyrir börn í 1. til 4. bekk. Þar er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf og mikla útiveru. Skipulag hvers dags skiptist í leikstöðvar, útiveru og smiðjur.

Skráning í frístund

Þú skráir barnið á frístundavefnum Völu. Best er að senda inn skráninguna fyrir 15. júní fyrir næsta skólaár, eftir það fara umsóknir á biðlista og eru ekki afgreiddar fyrr en í ágúst. Skráning gildir í eitt skólaár í senn (ágúst–júní). Sjá nánar um frístund á vef Hafnarfjarðar.

Opnunartími

Selið opnar eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur og er opið til 17. Selið er lokað í vetrarfríi auk þess sem Selið lokar tvisvar yfir árið vegna skipulagsdaga.

Frístundaakstur

Börn í 1.–4. bekk fá fylgd í frístundaakstur sem keyrir þau á æfingar hjá íþróttafélögum bæjarins. Skrá þarf barn sérstaklega í frístundaaksturinn í Völu. Aksturinn er ókeypis og komast öll skráð börn að, líka börn sem eru ekki skráð í frístundaheimili. Sjá nánar um frístundaakstur á vef Hafnarfjarðar.