Nemendur í 7.bekk tóku þátt í Stóru upplestrarkeppninni sem var sett á Degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember síðastliðinn. Allir nemendur í árganginum æfðu upplestur í skóla og heima fyrir en í bekkjarkeppninni voru 11 nemendur valdir til þess að taka þátt í skólakeppninni.
Í morgun fór skólakeppnin fram á sal skólans. 6. og 7. bekkur voru áhorfendur ásamt foreldrum lesara og kynna.
Nemendur stóðu sig gríðarlega vel og ljóst að þau höfðu æft sig vel. Nemendur lásu svipmyndir úr bókinni Blokkin á heimsenda eftir Huldu Bjarnadóttur og Arndísi Þórarinsdóttur og ljóð eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson. Einnig völdu nemendur sér ljóð sem þau lásu líka.
Dómarar voru þau Erna Friðriksdóttir fyrrverandi deildarstjóri unglingadeildar, Ingibjörg Einarsdóttir upphafskona Stóru upplestrarkeppninnar og Skúli Pálsson kennari við skólann og ljóðsskáld.
Sigurvegarar munu taka þátt í lokakeppninni sem haldin verður þann 17. mars í Víðistaðakirkju. Sigurvegarar Öldutúnsskóla eru þær Ásdís Inga Stephensdóttir Midgley og Bríet Ýr Daðadóttir ásamt Gesti Þór Ingólfssyni sem er varamaður.
Við óskum þeim innilega til hamingju og þökkum öllum þátttakendum fyrir frábæran lestur.