Útivistarvalið fór í skíðaferð í Bláfjöll 1.mars með 28 unglinga. Útivistarvalið fór í skíðaferð í Bláfjöll 1.mars með 28 unglinga. Veðrið lék við okkur þrátt fyrir smá kulda. Flestir nemendur höfðu farið á skíði eða bretti áður en nokkrir mjög sjaldan. Öllum gekk vel og tóku margir miklum framförum á þessum tíma sem við vorum í fjallinu. Mjög skemmtileg ferð með flottum unglingum og margir spenntir að halda áfram að stunda skíðaíþróttina. Deila Tísta