Hefð hefur verið fyrir því í Öldutúnsskóla að halda dag stærðfræðinnar hátíðlegan. Hefð hefur verið fyrir því í Öldutúnsskóla að halda dag stærðfræðinnar hátíðlegan. Í gegnum árin hafa stærðfræðistöðvar verið settar upp víðsvegar um skólann og nemendur fengið að spreyta sig við lausnir. Að þessu sinni var gerð breyting og fengu nemendur 10.bekkja það verkefni í stærðfræði að búa til þrautir/leiki fyrir daginn í samráði við stærðfræðikennara. Á sjálfum degi stærðfræðinnar settu svo nemendurnir upp stærðfræðistöðvarnar og fengu yngri nemendur skólans að leika sér og spreyta sig í hinum ýmsu stærðfræðiverkefnum. Þarna voru stöðvar með búðarleik, flokkun rúmfræðiforma, mælingum, stærðfræðipúsli og fleiru. Mikil leikgleði ríkti í skólanum og elstu nemendurnir hjálplegir þeim yngri. Deila Tísta