Eftirminnanleg skólaheimsókn og Danmerkurferð nemenda í dönskuvali í 9. og 10. bekk maí 2024

Eftirminnanleg skólaheimsókn og Danmerkurferð nemenda í dönskuvali í 9. og 10. bekk maí 2024 Það var mér sönn ánægja að gefast tækifæri á því að ferðast með vaska valfagsnemendur mína úr dönsku héðan frá Öldutúnsskóla til Danmerkur 13.-18. maí síðastliðinn, eftir að við fengum úthlutuðum veglegum styrk sem við sóttum um úr skandinavískum sjóði Clara Lachmanns. Síðastliðin tvö ár höfum við átt í samstarfi við danskan einkaskóla í Næstved á Sjálandi, Herlufsholm Skole og Gods, og höfðum við mikinn hug á því að endirgjalda þær góðu heimsóknir. Þannig gæfist einstakt tækifæri á því að veita okkar nemendum kost á því að kynnast enn frekar dönsku máli og upplifa danska menningu, lífsstíl og stemningu. Þrátt fyrir heldur stuttan fyrirvara, en þó með vel skipulagða og skothelda dagskrá og ferðaplan, héldu ellefu galvaskir nemendur úr 9. og 10. bekk utan ásamt undirritaðri “dansklæreren” og Erlu Jónatansdóttur tónmenntakennara sem slóst í för með okkur hópnum og var frábær ferðafélagi og fararstjóri.
Fyrsti áfangastaður var Kaupmannahöfn þar sem við römbuðum um borgina, Strikið ofl. þekkt kennileiti. Því næst héldum við með kvöldlestinni til Næstved þar sem við áttum heimangengt í einum elsta og virtasta heimavistarskóla Danmerkur. Þar fengum við höfðinglegar móttökur næstu þrjá daga og þar tókum við þátt í fjölbreyttu skólastarfi með vinabekk okkar “10.GO “.
Við slógumst í för með þeim í strætóferð til fallega strandbæjarins Karrebæksminde og skoðuðum heimabæinn Næstved og grannskoðuðum gamla skólann og góssið sem honum fylgir og á rætur sínar að rekja aftur til ársins 1565. Sem þökk fyrir gestrisnina og heimboðið afhentum við skólanum veglega bókagjöf frá Öldtúnsskóla í formi praktútgáfu Íslendingasagnanna í nýrri danskri þýðingu. Skólastjóri tók klökkur við gjöfinni fyrir hönd þeirra og þakkaði innilega fyrir hönd allra, bæði samstarf skólanna í milli og vinsemdina í þeirra garð. Því næst hélt hópurinn aftur yfir til Kóngsins Köben og við tók allsherjar menningar- og verslunarleiðangur næstu daga með gistingu á Danhostel Copenhagen City. Síðasta degi ferðalanganna var eytt í Tivoli og eftir dásamlega daga í Danaveldi héldum við heim á leið með farteskið fullt af ógleymanlegum minningum og góðri samveru. Ferðin var stórkostlega vel heppnuð í alla staði. Nemendur, allir sem einn, voru sem hugur manns og spennandi og lærdómsríkar upplifanir dag hvern sköpuðu dýrmætar minningar og reynslu sem þeir munu búa að um ókomna tíð. Þeir voru bæði skólanum, landi og þjóð til sóma í hvívetna, einsog við var að búast með þennan sköruglega hóp yndislegra unglinga. Norræn samvinna og vinatengsl eru afar mikilvæg fyrir íslensk ungmenni sem mörg hver stefna á nám og dvöl á Norðurlöndum síðarmeir. Námsferðir sem þessar kveikja enn frekari áhuga þeirra, þroska þau og víkka sjóndeildarhring þeirra.

Tak for denne gang og god vind fremover. Með kærri kveðju, Sigríður Alma Guðmundsdóttir dönskukennari við Öldutúnsskóla