Þriðjudaginn 21. maí fóru 28 nemendur úr 8-10 bekk inn í Þórsmörk og gengu tæpa 13 km í blíðskaparveðri. Það var Fimmvörðuhálsvalið sem var hér á ferð en ekki var hægt að ganga Fimmvörðuhálsinn í haust vegna vatnavaxta í ánum og því var ákveðið að fara inn í Þórsmörk í staðinn.

Þriðjudaginn 21. maí fóru 28 nemendur úr 8-10 bekk inn í Þórsmörk og gengu tæpa 13 km í blíðskaparveðri. Það var Fimmvörðuhálsvalið sem var hér á ferð en ekki var hægt að ganga Fimmvörðuhálsinn í haust vegna vatnavaxta í ánum og því var ákveðið að fara inn í Þórsmörk í staðinn. Þetta var virkilega kröftugur og flottur hópur sem rúllaði upp göngunni og hefði ef eitthvað var mátt vera aðeins þreyttari þegar heim í skála var komið, svo mikil var orkan. Í Básum voru grillaðir hamborgarar og ýmislegt brallað fram eftir kvöldi. Allir komnir í ró um miðnætti eftir góða kvöldsögu í boði eins fararstjórans.