Hlutverk foreldrafélagsins er að styðja skólastarfið, stuðla að velferð nemenda og efla tengsl heimila og skóla. Allir forsjáraðilar nemenda í skólanum teljast félagar í foreldrafélaginu. Stjórn Foreldrafélags Öldutúnsskóla Stjórn foreldrafélagsins er skipuð einum fulltrúa úr hverjum árgangi, alls tíu manns. Stjórnin er kosin á aðalfundi félagsins sem er haldin byrjun skólaársins. Skólaráð Tveir fulltrúar foreldra eru kosnir í skólaráð. Æskilegt er að annar þeirra sé einnig í stjórn foreldrafélagsins. Stjórn foreldrafélagsins í samráði við skólastjóra auglýsir eftir tilnefningum úr hópi foreldra í skólaráð. Handbók foreldrafélaga grunnskóla Stjórn 2024-2025 Nafn Hlutverk Svava Björnsdóttir [email protected] Formaður Ragnar Guðmundsson Gjaldkeri Pétur Markan Stella Björg Kristinsdóttir Alma Jónsdóttir Fróði Kristinsson Ásdís Guðmundsdóttir Íris Ósk Friðriksdóttir Hrafnhildur Raven Valgerður Þórunn Bjarnadóttir Hulda Ósk Baldvinsdóttir Gísli Garðarsson Lög 1. grein Félagið heitir: Foreldrafélag Öldutúnsskóla. 2. grein Félagar eru allir foreldrar barna í Öldutúnsskóla, Hafnarfirði. 3. grein Tilgangur félagsins er að auka tengsl foreldra við skólann og stuðla að aukinni velferð nemenda í skólanum. 4. grein Stjórn félagsins skal skipuð 11 foreldrum, einum fyrir hvern árgang nemenda og einum fyrir sérdeild skólans. Stjórnin skiptir með sér verkum og setur sér starfsreglur. Fulltrúa úr kennararáði Öldutúnsskóla er heimilt að sitja sem áheyrnarfulltrúi á fundum stjórnar foreldrafélagsins. 5. grein Fulltrúi hvers árgangs í stjórn er ábyrgur fyrir að bekkjarfulltrúar séu skipaðir fyrir hvern bekk í árgangnum. 6. grein Bekkjarfulltrúar sjá um starf í þágu síns bekkjar. Vilji þeir koma á framfæri einhverjum málum er varða skólann í heild eða hluta hans skal þeim komið á framfæri við stjórn foreldrafélagsins, sem annast öll slík mál. 7. grein Fundi í stjórn skal halda minnst fjóra á vetri, þar af tvo fyrir jól. 8. grein Kosningar til stjórnar skulu fara fram á aðalfundi og skal til hans boðað með minnst 7 daga fyrirvara. Aðalfundur skal haldinn eigi síðar en 10. október ár hvert. Á aðalfundi skal kjósa varaformann úr röðum stjórnarmanna. Varaformaður situr í 1 ár. Að því loknu tekur hann við formennsku í félaginu og sinnir henni í 1 ár. 9. grein Lög þessi öðlast þegar gildi. Tillögur um lagabreytingar skulu tilkynntar í aðalfundarboði og lagðar fram skriflega á aðalfundi. Einfaldur meirihluti atkvæða fundarmanna nægir til samþykktar á lagabreytingum