Í 4.bekk eru 4 nýjir einstakir „nemendur“ það eru förustafirnir Eva Ásdís Sproti og Lilli Klifurmús (kosið var um nöfnin) Förustafir eru skemmtileg skordýr sem koma frá hitabeltinu en sú tegund sem við erum með er frá Ástralíu. Í 4.bekk eru 4 nýjir einstakir „nemendur“ það eru förustafirnir Eva Ásdís Sproti og Lilli Klifurmús (kosið var um nöfnin) Förustafir eru skemmtileg skordýr sem koma frá hitabeltinu en sú tegund sem við erum með er frá Ástralíu. Þeir eru ótrúlega þægilegir eru ekkert mikið á hreyfingu og finnst alveg gaman að láta halda á sér… svona oftast. Þeir eru laufætur og þessir sem við erum með elska Lambhagasalat og rósablöð – á hátíðisdögum fá þeir kannski afhýdd epli. Þeir þurfa mikinn vökva og þurfa nemendur alltaf að passa upp á að raki sé í búrinu og salat eða rósablöð. Þessi dýr skipta um ham og gerðist það aðfaranótt föstudagsins 6.sept og var það skemmtileg kennslustund þegar nemendur í 2.K komu í heimsókn og fræddumst við aðeins um það af hverju sum dýr fara úr hamnum og að hvaða leiti húðin á okkur og þeim er ólík. Deila Tísta