Nemendur í 10. bekk fengu heimsókn í íslensku frá rithöfundinum Emblu Bachmann. Nemendur í 10. bekk fengu heimsókn í íslensku frá rithöfundinum Emblu Bachmann. Þar kynnti hún bókina sína Stelpur stranglega bannaðar en bókin er jafnframt tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlauna í flokki barna og ungmennabóka. Embla las brot úr bókinni og sömuleiðis svaraði fjölbreyttum spurningum nemenda. Heimsóknin vakti góðar undirtektir nemenda. Embla er sú yngsta í sögunni til að hljóta tilnefningu til íslensku bókmenntaverðlaunanna, en hún er 17 ára gömul. Deila Tísta