Í síðustu viku sýndu nemendur í 5. bekk helgileikinn fyrir nemendur í 1. – 7. bekk og foreldra sína með stórkostlegum árangri. Í síðustu viku sýndu nemendur í 5. bekk helgileikinn fyrir nemendur í 1. – 7. bekk og foreldra sína með stórkostlegum árangri. Allir krakkarnir í 5. bekk tóku þátt í að setja upp leikritið og æfðu undur dyggri stjórn Erlu Jónatansdóttir, Brynhildar Auðbjargardóttur og umsjónarkennaranna. Má með sanni segja að hópurinn hafi staðið sig í alla staði afar vel og var um það talað hvað sýningarnar voru vel heppnaðar. Deila Tísta