Dagana 9. – 12. maí 2024 standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni HREINSUM HAFNARFJÖRÐ en þá geta íbúar í Hafnarfirði losað sig við garðúrgang í gám innan allra hverfa við hvern og einn grunnskóla. Gámarnir verða við skólana frá kvöldi miðvikudaginn 8. maí til morguns mánudaginn 13. maí. Íbúar í Hafnarfirði eru hvattir til að nýta sér þjónustuna eða koma pokunum beint á Sorpu. Vakin er sérstök athygli á því að Sorpa tekur á móti garðúrgangi endurgjaldslaust. Sjá opnunartíma á Sorpu Breiðhellu hér Dagana 9. – 12. maí 2024 standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni HREINSUM HAFNARFJÖRÐ en þá geta íbúar í Hafnarfirði losað sig við garðúrgang í gám innan allra hverfa við hvern og einn grunnskóla. Gámarnir verða við skólana frá kvöldi miðvikudaginn 8. maí til morguns mánudaginn 13. maí. Íbúar í Hafnarfirði eru hvattir til að nýta sér þjónustuna eða koma pokunum beint á Sorpu. Vakin er sérstök athygli á því að Sorpa tekur á móti garðúrgangi endurgjaldslaust. Sjá opnunartíma á Sorpu Breiðhellu hér Íbúar eru hvattir til að nota endurunnar umbúðir eða margnota poka við hreinsunina. Bent er á að ekki má setja garðaúrganginn í pokum í gáminn heldur skal losa úr pokunum beint í gáminn. Tilvalið er einnig, þar sem möguleikinn er fyrir hendi, að safna garðaúrgangi í safnhaug á góðum stað í garðinum og nýta til moltugerðar. Íbúar í öllum hverfum Hafnarfjarðar eru hvattir til að taka virkan þátt í hreinsuninni og er tilvalið í aðdraganda hreinsunardaga og á meðan á hreinsunardagar standa yfir að taka til hendinni í garðinum, snyrta runna og beð. Skyldur lóðareigenda Að gefnu tilefni er sérstök athygli vakin á því að lóðarhöfum er skylt að halda vexti trjáa og runna á lóðinni innan lóðarmarka. Trjágróður getur skapað óþægindi og jafnvel hættu fyrir gangandi og akandi vegfarendur. Eins er lóðareigendum bent á að ákveðnar reglur gilda um byggingu á skjólvegg og grindverki innan lóðar sem mikilvægt er að kynna sér. Hreinsum Hafnarfjörð! Hreinsum, endurnýtum, flokkum og plokkum! Deila Tísta