Krakkarnir í 7.bekk buðu foreldrum sínum á jólaskemmtun á síðasta föstudag og buðu þau upp á fjölbreytt atriði, sem þau undirbjuggu á einni viku.
Krakkarnir í 7.bekk buðu foreldrum sínum á jólaskemmtun á síðasta föstudag og buðu þau upp á fjölbreytt atriði, sem þau undirbjuggu á einni viku.
Stór hópur steig á svið og lék með tilþrifum leikritið Uppreisn Öskubusku. Á bak við þau var skapandi hópur sem sá um að finna alla búninga og leikmuni og aðstoðaði á sýningunni sjálfri. Tveir hópar sáu svo um tónlistaratriði. Annar hópurinn spilaði á gítar og söng Ef ég nenni og hinn hópurinn myndaði hljómsveit og spilaði All I want for christmas.
Sýningin tókst einstaklega vel og við erum afar stolt af þeirri vinnu og samvinnu sem krakkarnir lögðu á sig. Frábær skemmtun en ekki síður dýrmæt reynsla fyrir nemendur að vinna saman að stærra verkefni