Nemendur í 7.bekk fengu að kryfja þorsk í síðustu viku. Nemendur í 7.bekk fengu að kryfja þorsk í síðustu viku. Þau byrjuðu á því að fá sýnikennslu frá Aðalheiði náttúrufræðikennara í unglingadeild. Því næst fékk hver hópur einn þorsk og byrjuðu á því að opna hann. Þau tóku innyflin úr og skoðuðu þau vel m.a. maga, þarma, hjarta, nýru og gallblöðru. Þau skoðuðu líka hvort að fiskurinn væri hængur eða hrygna. Að lokum flökuðu þau fiskinn og roðflettu hann. Samhliða þessari vinnu skráðu nemendur hjá sér t.d. hversu þung ákveðin líffæri voru og fleira. Eftir krufninguna gerðu nemendur skýrslu. Skrifuðu hver tilgangurinn með krufningunni var, hvaða áhöld voru notuð og lýstu öllu ferlinu í réttri tímaröð. Að lokum áttu þau að segja frá hverju þau komust að og hvort eitthvað hefði komið þeim á óvart. Nemendur voru virkilega áhugasamir og fannst mjög skemmtilegt. Deila Tísta