Nemendur í 4. bekk fóru í heimsókn á leikskólann Hvamm í dag. Þar lásu þau fyrir börnin á leikskólanum og stóðu sig af einstakri prýði. Börnin í Hvammi tóku þeim opnum örmum, og skapaðist notaleg og skemmtileg stemning. Þetta var ánægjuleg heimsókn fyrir alla aðila.