Framundan eru líðanfundir í Öldutúnsskóla. Foreldrar eru boðaðir til morgunfundar ásamt öðrum foreldrum úr bekknum/árganginum. Markmiðið með þessum fundum eru meðal annars að: efla samstarf heimila og skóla styrkja tengsl meðal foreldra ræða líðan og félagslega stöðu barnanna Framundan eru líðanfundir í Öldutúnsskóla. Foreldrar eru boðaðir til morgunfundar ásamt öðrum foreldrum úr bekknum/árganginum. Markmiðið með þessum fundum eru meðal annars að: efla samstarf heimila og skóla styrkja tengsl meðal foreldra ræða líðan og félagslega stöðu barnanna Á fundunum sitja foreldrar í hring eins og nemendur gera á bekkjarfundum og hver og einn fær tækifæri til að tjá sig og hlusta á hina. Þetta er vettvangur fyrir foreldra til að hittast og ræða í einlægni við aðra foreldra um líðan barna sinna í skólanum og er því afar mikilvægt að fulltrúi frá hverju barni mæti. Fundirnir hefjast kl. 8:10 í umsjónarstofu nemenda og taka um eina kennslustund. Fundirnir eru sem hér segir: Mánudaginn 14. október – 6. bekkur Þriðjudaginn 15. október – 3. bekkur Miðvikudaginn 16. október – 5. bekkur Föstudaginn 18. október – 4. bekkur Þriðjudaginn 22. október 8. bekkur Miðvikudaginn 23. október 10. bekkur Þriðjudaginn 29. október – 9. bekkur Miðvikudaginn 30. október 7. bekkur Fimmtudaginn 31. október 1. bekkur Föstudaginn 1. nóvember 2. bekkur Deila Tísta