Kórar skólans hafa haft í nægu að snúast þó að stutt sé liðið á skólaárið.

Kórar skólans hafa haft í nægu að snúast þó að stutt sé liðið á skólaárið.
Þann 19. september fóru söngvararnir í Hörpu og sungu við opnun Ársfundar atvinnulífsins með yfirskriftina Samtaka um grænar lausnir. Það frumfluttu krakkarnir n texta eftir Þórarinn Eldjárn við gamlan húsgang: Ljósið kemur langt og mjótt. Viku seinna skellti eldri kórinn sér á Landsmót íslenskra barnakóra sem fram fór á Hvolsvelli. Þar voru 200 börn samankomin sem æfðu og sungu saman íslenskar dægurperlur, allt frá Gamli skólinn til From the Start eftir Laufeyju og Parísarhjól með GDRN. Krakkarnir stóðu sig frábærlega hvort heldur sem var á kvöldvökuu, tónleikum eða í samskiptum og hegðun. Söngur gerir alla og allt betra. Við viljum frá fleiri krakka í kór og þá er ég líka að tala um stráka.