Á haustönn var boðið upp á ljósmyndun sem valgrein og var áhuginn það mikill að úr urðu tveir hópar. Guðný Hilmarsdóttir sá um áfangann en auk þess að vera kennari er hún er menntaður ljósmyndari.

Á haustönn var boðið upp á ljósmyndun sem valgrein og var áhuginn það mikill að úr urðu tveir hópar. Guðný Hilmarsdóttir sá um áfangann en auk þess að vera kennari er hún er menntaður ljósmyndari. Lögð var áhersla á nærumhverfið og daglegt líf. Nemendur unnu með myndirnar í forritinu Snapseed í spjaldtölvu. Markmiðið með áfanganum var að fá nemendur til að nýta snjallsímana í fleira en samfélagsmiðla og veita nærumhverfinu og hversdagslegur hlutunum athygli. Sýningin er í miðrými skólans við ÍSAT stofuna. Við hvetjum nemendur og aðstandendur til að koma og skoða myndirnar. Sjón er sögu ríkari!