Námssamtalsdagur verður þriðjudaginn 14. október. Fyrirkomulag námssamtala er með þeim hætti að nemendur mæta með foreldrum í samtal til umsjónarkennara. Foreldrar þurfa að skrá sig í samtal á Mentor. Hér má finna leiðbeiningar um það hvernig á að skrá sig í samtal. Aðrir starfsmenn verða einnig til samtals þennan dag. Ef foreldrar óska eftir því að heyra í list- og verkgreinakennara, íþróttakennara, stjórnendum, faggreinakennara eða námsráðgjafa þá senda tölvupóst á viðkomandi starfsmann. Frístundaheimilið Selið er opið þennan dag fyrir þá nemendur sem eru skráðir. Deila Tísta