Námssamtöl fara fram fimmtudaginn 12. febrúar nk. Fyrirkomulag námssamtala er með þeim hætti að foreldrar og nemendur mæta í samtal til umsjónarkennara. Námssamtölin eru nemendastýrð.
Annað starfsfólk verður einnig til samtals þennan dag. Ef foreldrar óska sérstaklega eftir því að hitta aðra en umsjónarkennara þá senda þeir viðkomandi tölvupóst og bóka tíma.
Hvernig á að skrá í samtal hjá umsjónarkennara?
Foreldrar eiga að skrá sig í samtal í gegnum Mentor. Opið er fyrir skráningu til 11. febrúar.
Umsjónarkennarar gefa nánari upplýsingar um samtölin.