Dagana 17. – 19. apríl voru þemadagar í Öldutúnsskóla. Nemendur unnu fjölbreytt og skemmtileg verkefni í tengslum við viðfangsefnið sem var að þessu sinni sirkus.

Dagana 17. – 19. apríl voru þemadagar í Öldutúnsskóla. Nemendur unnu fjölbreytt og skemmtileg verkefni í tengslum við viðfangsefnið sem var að þessu sinni sirkus. Trúðar og töfrabrögð, föndur og söngur, hreyfing og virkni, sirkustjöld og leikþættir og margt, margt fleira í gangi í skólanum þessa daga. Í lok þemaviku fylltist svo skólinn af foreldrum og öðrum aðstandendum sem voru mætt til að skoða afrakstur þemavinnunnar.

Að þessu sinni unnu vinabekkir saman. Yngri og eldri nemendur saman í hóp. Gekk sú vinna afar vel og var gaman að sjá hvernig eldri nemendur aðstoðuðu þá yngri.