Skólaráð

Skólinn

Samráðsvettvangur um skólahald

Skólaráð grunnskóla er samstarfsvettvangur starfsfólks skóla, nemenda, foreldra og grenndarsamfélags. Ráðið er kosið til tveggja ára í senn.

Skólastjóri boðar til sameiginlegs fundar skólaráðs og stjórnar nemendafélags að lágmarki einu sinni á ári og sendir út fundaáætlun skólaársins. Hann boðar til funda, sendir drög að umræðuefnum og stýrir fundum. Aðstoðarskólastjóri ritar fundargerð og sér til þess að þær birtist á vef skólans.

Helstu verkefni skólaráðs

  • Umfjallanir um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið.
  • Umsagnir um áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skólans áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin.
  • Að fylgjast með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda.

Skólaráð Öldutúnsskóla 2022–2024

Nafn Hlutverk Netfang
Valdimar Víðisson Skólastjóri [email protected]
Margrét Sverrisdóttir Aðstoðarskólastjóri [email protected]
Anna Sveinsdóttir Fulltrúi starfsfólks [email protected]
Ásdís Reykdal Jónsdóttir Fulltrúi starfsfólks [email protected]
Sigurður Ben Guðmundsson Fulltrúi starfsfólks [email protected]
Alma Jónsdóttir Fulltrúi foreldra
Stella Kristinsdóttir Fulltrúi foreldra
Karen Ólafía Guðjónsdóttir Fulltrúi nemenda
Sæmundur Petr Pálsson Fulltrúi nemenda
Erna Friðriksdóttir Fulltrúi grenndarsamfélags