Fimmtudaginn 23. maí fóru allar stelpur í 9. bekk á viðburð sem kallast stelpur og tækni. Fimmtudaginn 23. maí fóru allar stelpur í 9. bekk á viðburð sem kallast stelpur og tækni. Það er Háskólinn í Reykjavík sem skipuleggur ásamt mörgum fyrirtækjum og er markmiðið að kynna og efla stelpur í að fara í tækninám. Fyrir hádegi fórum við á tvær málsstofur í HR, þá var boðið upp á pizzur og gos í hádeginu og síðan fóru stelpurnar í Öldutúnsskóla í heimsókn í verkfræðifyrirtæki sem heitir EFLA. Þar tók á móti okkur hópur af ungum konum sem kynntu fyrir stelpunum starfið sitt og þær námsleiðir sem þær fóru. Deila Tísta