Stíll hönnunarkeppni Hafnarfjarðar var haldin í Áslandsskóla 1. desember sl. þar sem ellefu lið frá sex grunnskólum í Hafnarfirði kepptu Stíll hönnunarkeppni Hafnarfjarðar var haldin í Áslandsskóla 1. desember sl. þar sem ellefu lið frá sex grunnskólum í Hafnarfirði kepptu. Þemað í ár var gufupönk (steampunk) en það er stíll sem oftast tengist skáldskap með viktoríanskri tímaskekkju. Var Öldutúnsskóli með þrjú lið: Humm: Margrét Edda, Una Dís, Matthildur og Helena. Valkyrjurnar: Vala, Margrét Finna, Arney, Elísabet og Freyja Dögg. Swaggers: Hrafnkatla, Fjóla, Cristine og Karítas. Valkyrjurnar úr Öldutúnsskóla voru með flottustu förðunina en í liðinu voru þær Freyja Dögg, Arney, Elísabet, Margrét Finna og Vala. Enginn einn sigurvegari var útnefndur en öll þrjú liðin komust áfram í lokakeppni Samtaka félagsmiðstöðva. Hér má finna frétt í Fjarðarfréttum um keppnina. Deila Tísta