Þessa daga verður hefðbundin kennsla brotin upp og nemendur vinna margvísleg og fjölbreytt verkefni í tengslum við þemað sem að þessu sinni er ,,sirkus“. Stundaskrá þessa daga verður sem hér segir: Þessa daga verður hefðbundin kennsla brotin upp og nemendur vinna margvísleg og fjölbreytt verkefni í tengslum við þemað sem að þessu sinni er ,,sirkus“. Stundaskrá þessa daga verður sem hér segir: Miðvikudagur 17.04. – Nemendur eru í skólanum kl. 8:10 – 13:10. Fimmtudagur 18.04. – Nemendur eru í skólanum kl. 8:10 – 13:10. Föstudagur 19.04. – Nemendur eru í skólanum kl. 8:10 – 11:30. Nemendur sem eru skráðir í Selið geta farið þangað eftir að skóla lýkur ofangreinda daga. Íþróttir, sund og smiðjur falla niður og þurfa nemendur ekki að mæta með íþrótta- og sundföt. Nemendur mæta með nesti eins og venjulega. Hefðbundinn hádegismatur verður miðvikudag og fimmtudag, en á föstudag er langloka og safi fyrir þá sem eru í áskrift. Opið hús verður á föstudaginn milli kl. 8:30 og 9.30 fyrir foreldra þar sem afrakstur þemadaga verður til sýnis í stofum og á göngum. Vegna skorts á bílastæðum þá hvetjum alla sem geta að koma gangandi!!! Deila Tísta