Þessa daga verður hefðbundin kennsla brotin upp og nemendur vinna margvísleg og fjölbreytt verkefni í tengslum við þemað sem að þessu sinni er ,,Ísland“.

Stundaskrá þessa daga verður sem hér segir:

· Miðvikudagur og fimmtudagur 25. og 26. mars.

· Yngri deild – Nemendur eru í skólanum kl. 8:10 – 13:00

· Miðdeild og unglingadeild – Nemendur í skólanum kl. 8:10 – 13:30

· Föstudagur 27. mars – Nemendur eru í skólanum kl. 8:10 – 11:30.

Nemendur sem eru skráðir í Selið geta farið þangað eftir að skóla lýkur ofangreinda daga.

Íþróttir, sund og smiðjur falla niður og þurfa nemendur ekki að mæta með íþrótta- og sundföt. Nemendur mæta með nesti eins og venjulega og hefðbundinn hádegismatur verður þessa daga.

Opið hús verður á föstudaginn fyrir foreldra þar sem afrakstur þemadaga verður til sýnis í stofum og á göngum.

· Kl. 8:20 – 9:00 Foreldrar nemenda í yngri deild.

· Kl. 8:45– 9:25 Foreldrar nemenda í miðdeild.

· Kl. 9:00 – 9:40 Foreldrar nemenda í Unglingadeild.

Þeir foreldrar sem eiga börn í fleiri en einni deild velja tímasetningu.

Vegna skorts á bílastæðum þá hvetjum alla sem geta að koma gangandi!!!

Kennarar veita nánari upplýsingar um skipulag þessara daga.