Undanfarna þrjá daga hafa verið þemadagar í Öldutúnsskóla.
Í dag stóð til að halda opið hús, en vegna vonskuveðurs í gær (fimmtudag) misstum við af einum degi. Nemendur og starfsfólk lögðu því sérstaka áherslu á að ljúka verkefnum og setja þau upp í dag.
Aldursstigin unnu á mismunandi tímabilum og fengust við fjölbreytt verkefni tengd þeim:
• Yngsta stigið: 1826–1876
• Miðstigið: 1926–1976
• Unglingastigið: Ísland í dag
Á göngum skólans má nú sjá fjölda fallegra og vandaðra verkefna sem nemendur hafa unnið. Hér eru nokkur dæmi.
Eftir helgi munum við deila fleiri myndum 📸