Hópur nemenda úr 8-10 bekk fór inn í Þórsmörk á sunnudaginn. Hópur nemenda úr 8-10 bekk fór inn í Þórsmörk á sunnudaginn. Um var að ræða svokallað Fimmvörðuhálsval nema hvað ekki var hægt að ganga Fimmvörðuhálsinn í þetta skipti vegna hvassviðris. Í staðinn var farið í krefjandi göngu inni í Þórsmörk í blíðskapar veðri. Nemendur, 31 talsins, stóðu sig glimrandi vel í göngunni, kröftugur og flottur hópur. Þegar niður í Bása var komið voru grillaðir hamborgarar sem nokkrir 10. bekkingar sáu um og leikið, spilað og spjallað. Allir komnir í ró kl 11:30 enda margir lúnir eftir göngu dagsins. Deila Tísta