Vika6 í Öldutúnsskóla er búin að vera frábær. Nemendur eru búnir að fá fræðslu og vinna fjölbreytt verkefni tengt því þema sem er hverju sinni. Í ár er þemað ofbeldi og öryggi. Verkefnin í vikunni hafa því verið um mörk, samþykki, virðingu, heilbrigð og óheilbrigð samskipti. Vikan endar svo á göngu um skólann þar sem nemendur labba hringinn í kringum skólann með verkefnin sín og sjá verkefnin hjá öðrum. Deila Tísta