Vika6 í Öldutúnsskóla gekk virkilega vel. Við gerðum nokkur verkefni af viku6 síðu Jafnréttisskólans, unnum heildstætt verkefni um allan skólann þar sem nemendur unnu með mismunandi hugtök tengd þema vikunnar sem var samskipti og sambönd. Vika6 í Öldutúnsskóla gekk virkilega vel. Við gerðum nokkur verkefni af viku6 síðu jafnréttisskólans, unnum heildstætt verkefni um allan skólann þar sem nemendur unnu með mismunandi hugtök tengd þema vikunnar sem var samskipti og sambönd. Nemendur bjuggu til veggspjöld, Kahoot, spil, klípusögur, tímarit, hlaðvörp, myndbönd, auglýsingar, teiknimyndasögur og margt fleira. Umræður á bekkjarfundum vikunnar tengdust einnig þemanu. Það var líf og fjör í skólanum sem endaði á að ganga um skólann með veggspjöldin. Bókasafnið tók þátt í þessu með okkur og settum við fram bækur sem tengjast þemanu. Við skreyttum einnig kaffistofu starfsfólks, buðum upp á nammi alla vikuna og enduðum þetta á brjóstabollakökum fyrir starfsfólk skólans. Virkilega skemmtileg vika hérna í skólanum. Deila Tísta