Í morgun fóru nemendur í 6. L ásamt kennurum sínum í Húsdýragarðinn. Nemendum var skipt í 3 hópa og fór einn hópur í fjárhús, einn í fjós og þriðji sá um villtu dýrin. Byrjað var á því að kemba, þrífa og gefa svo dýrunum að borða og fengu þau fræðslu jafnóðum. Svo var farið í kaffi og eftir kaffi fengu nemendur spjöld með orðum eða myndum til að rifja upp það sem þau lærðu, áttu að flokka þau. Svo var hver og einn hópur með kynningu um sín dýr. Mjög flott hjá þeim. Fengu þau því næst smá frjálsan tíma og að lokum fylgdust við með þegar selunum var gefið. Virkilega skemmtilegur vinnudagur hjá okkur öllum. Deila Tísta