Ýmsar upplýsingar sem tengjast skólastarfinu
Powered by Google Translate
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
Nemendur í 1.–7. bekk fara út í öllum frímínútum, en nemendur elstu deildar mega vera innandyra.
Ef nemendur yngri deilda þurfa af einhverjum ástæðum að vera inni í frímínútum þurfa þeir að hafa með sér beiðni að heiman til umsjónarkennara, þar sem ástæða óskar um inniveru er tilgreind. Miðað er við að nemandi sé ekki inni í meira en einn dag eftir veikindi.
Gæslu í frímínútum sinna skólaliðar og kennarar ýmist úti eða inni. Ef veður hamlar útivist eru nemendur innandyra undir umsjón kennara og skólaliða.
Heimanám miðast við vinnu á virkum dögum og vikuáætlun sem finna má í Mentor. Heimanámsverkefni getur verið undirbúningur fyrir næstu kennslustund, að ljúka verkefni sem ekki tókst að ljúka í skóla, samvinnuverkefni nemenda eða önnur verkefni sem kennari setur fyrir. Nemendur fá endurgjöf eða einkunnir fyrir heimanámið.
Nemendur bera ábyrgð á sínu heimanámi og eiga að skila heimanámsverkefnum vel unnum og á réttum tíma.
Reynt er að taka vel á móti nýjum nemendum þannig að fyrstu kynni þeirra og foreldranna af skólanum veiti þeim öryggi og vellíðan og þeim finnist þeir velkomnir í skólann.
Foreldrar skrá barn sitt í skólann á Mínum síðum á vef Hafnarfjarðar. Ef nemandi er að koma úr öðru sveitarfélagi, eða erlendis frá, þarf að skrá barnið á skrifstofu skólans á þar til gerðum eyðublöðum.
Áður en nemandinn byrjar í skólanum boðar umsjónarkennarinn nemanda og foreldra hans á kynningarfund og sýnir þeim um skólann. Undantekning getur verið á ef nemandi þarf að byrja í skólanum nær fyrirvaralaust.
Þegar nýr nemandi kemur inn í bekk er hann kynntur fyrir bekknum áður en hann kemur og umsjónarkennari útnefnir 2–4 leiðsögumenn úr bekknum fyrir nemandann. Reynt er að hafa þá ekki alla af sama kyni. Hlutverk þeirra er að passa upp á að nýi nemandinn sé ekki einn og fái allar upplýsingar sem hann þarf.
Umsjónarkennari kynnir nemandann fyrir öðru starfsfólki, eins og sérgreinakennurum, stuðningsfulltrúum og skólaliðum.
Námsráðgjafi boðar nýja nemandann í viðtalstíma og fylgir þeim nemendum eftir sem þess þurfa.
Ef nemendur eru með ofnæmi fyrir einhverjum matvælum er mikilvægt að upplýsa skólann og þau sem sjá um matinn um það.
Öllum grunnskólabörnum í Hafnarfirði er boðið upp á hafragraut 20 mínútum fyrir fyrstu kennslustund. Grauturinn er borinn fram í matsalnum frá 07:45–08:10.
Hægt er að skrá barn í heitan mat í hádeginu sem Skólamatur sér um. Matseðill fyrir vikuna birtist á vef skólans og Skólamatar.
Í byrjun skólaárs þarf að skrá barn í mataráskrift á vefsíðu Skólamatar. Það er hægt að velja fasta áskrift 5 daga vikunnar, sérstaka daga eða kaupa stakar máltíðir. Áskriftin framlengist sjálfkrafa um 1 mánuð, nema ef áskrift sé sagt upp eða breytt.
Lögð er áhersla á næringu barna, umhverfissjónarmið og matarsóun. Allir matseðlar eru næringaútreiknaðir og farið eftir ráðleggingum embætti Landlæknis.
Nemendur sem kjósa að vera ekki í mataráskrift geta komið með nesti að heiman og borðað í matsalnum þar sem er aðgangur að örbylgjuofni og samlokugrillum.
Á morgnana er hressing og hægt er að kaupa áskrift af ávöxtum- og grænmeti hjá Skólamat.
Ef þú átt 2 eða fleiri börn í grunnskóla færðu 25% afslátt af mataráskrift fyrir annað systkinið og 100% afslátt frá og með því þriðja. Systkini verða að vera með sama lögheimili og fjölskyldunúmer í Þjóðskrá.
Ef þú uppfyllir þessar reglur þarf ekki að sækja um sérstaklega, annars þarf að sækja um á Mínum síðum Hafnarfjarðarbæjar. Sækja þarf um fyrir 20. mánaðar til að fá afslátt fyrir mánuðinn eftir. Afslátturinn er ekki afturvirkur.
Öldutúnsskóli notar náms- og upplýsingakerfið Mentor þar sem nemendur geta séð stundatöfluna sína, fylgst með ástundun og námsframvindu. Foreldrar og nemendur hafa aðgang að kerfinu með kennitölu og lykilorði. Foreldrar hafa sama aðgang og nemendur auk þess að geta fylgst með skráningum í dagbók nemandans.
Foreldrar geta haft samband með tölvupósti við foreldra barna í bekk barnsins síns og kennara skólans í gegnum Mentor, tilkynnt veikindi og leyfi sem eru 3 dagar eða styttri, bókað viðtöl við kennara og fleira.
Námsmatsstefna Öldutúnsskóla byggir á leiðarljósi skólans: Virðing – Vellíðan – Virkni. Þessi gildi eiga að móta leiðir sem eru farnar í námsmati skólans og er regluleg endurskoðun og þróun á námsmati.
Megintilgangur námsmats er að örva nemendur, aðstoða þá við námið, kenna þeim að meta eigin frammistöðu og mæla sig við sett markmið. Námsmat á að vera leiðbeinandi, uppörvandi og uppbyggjandi.
Námsmat í hverjum árgangi er útlistað í námskrá fyrir hvern árgang. Þar kemur fram á hverju námsmatið byggist og hvernig það er útfært í hverri grein. Reynt er að upplýsa foreldra sem oftast um framgang námsins hjá barni þeirra.
Birting námsmatsins getur verið breytileg eftir árgöngum en allir nemendur fá einkunnir og umsagnir í lok anna. Við lok hvers skólaárs er prentað út sérstakt vitnisburðarblað með námsmati vetrarins.
Yfir veturinn er birting á námsmati meðal annars í verkefnabókum og námsmatsmöppum á Mentor, undir námsmati. Verkefnabók er með einkunnir úr könnunum eða kaflaprófum og þar er einnig rúm fyrir umsagnir. Kennarar opna fyrir aðgang nemenda og foreldra jafnóðum og þeir færa inn mat á námi nemenda.
Í námsmatsmöppum má finna námsmatið sem fram fer samkvæmt skipulagi viðkomandi kennara, eins og prófum, verkefnum, sýnishornum af vinnu nemenda, skýrslum og matsblöðum.
Nemendur í grunnskólum í Hafnarfirði fá ókeypis stílabækur, skriffæri, möppur og önnur ritföng sem þeir þurfa á að halda í daglegu skólastarfi. Námsbækur eru einnig ókeypis eins og alltaf hefur verið. Ætlast er til að ritföng verði eftir í skólanum og að nemendur geti unnið heimanám með ritföngum sem eru til á heimilinu.
Foreldrar þurfa aðeins að sjá börnum sínum fyrir skólatösku, sund- og íþróttafatnaði og skriffærum til notkunar heima.
Markmiðið er að draga úr kostnaði foreldra við nám barna sinna, tryggja jafnræði, nýta fjármuni betur og draga úr sóun.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendir út tilkynningar um veður þegar á þarf að halda, í samráði við lögreglu og skólayfirvöld.
Mikilvægt er að foreldrar og forsjáraðilar fylgist vel með fréttum af veðri, veðurspám og öðrum tilmælum frá yfirvöldum sem gætu haft áhrif á skólastarf barna og bregðist við í samræmi við aðstæður hverju sinni.
Oft safnast töluvert af óskilafatnaði á göngum skólans. Ef fötin eru merkt komast þau strax til skila og því mikilvægt að merkja föt barnanna. Skólaliðar leggja sig fram um að koma óskilafatnaði og töskum í réttar hendur.
Óskilamunir eru teknir fram og eru sýnilegir á viðtalsdögum þegar búist er við foreldrum í skólann. Foreldrar geta líka komið við í skólanum hvenær sem er ef þeir sakna einhvers.
Fatnaður sem er ósóttur eftir lok hvers skólaárs er gefinn til Rauða krossins.
Í Öldutúnsskóla fá allir nemendur í 5.—10. bekk spjaldtölvu til afnota.
Nemendur í 5.–7. bekk geyma spjaldtölvurnar að mestu í skólanum. Spjaldtölvurnar eru geymdar í sérstökum skáp þar sem þær eru hlaðnar yfir nótt. Kennari getur þó beðið nemendur um að taka spjaldtölvu með heim ef þörf er á til að vinna ákveðin verkefni.
Nemendur í 8.–10. bekk fara með spjaldtölvurnar heim í lok skóladags og koma með þær hlaðnar næsta skóladag. Mikilvægt er að tölvan sé alltaf fullhlaðin í byrjun dags þar sem hún er mikið notuð í kennslu og hætta á að tölvan eða hleðslutæki skemmist við að hlaða á göngum og í skólastofum. Ef það gerist þurfa foreldrar að útvega skólanum nýtt tæki.
Við lok hvers skólaárs skila nemendur spjaldtölvunni ásamt hleðslutæki til skólans til geymslu yfir sumarið.
Í boði er fjölbreytt úrval valmöguleika fyrir nemendur í 8.–10. bekk. Sumar valgreinar eru sameiginlegar fyrir 8.–10. bekk, aðrar fyrir 9. og 10. bekk og nokkrar valgreinar eru einungis fyrir 10. bekk. Valgreinar eru kynntar á vorin og nemendur velja fög áður en skóla lýkur fyrir sumarið.
Valgreinar eru kenndar hálft ár í senn, 1 til 2 kennslustundir í einu nema annað sé tekið fram í áfangalýsingu. Valgreinar eru ekki aukagreinar heldur eru þær jafn mikilvægar og kjarnagreinarnar og kröfur um ástundun og árangur þær sömu.
Val er bindandi fyrir komandi skólaár og því er mikilvægt að vanda valið. Ef ekki er nóg þátttaka í einstaka valgreinum geta þær fallið niður.
Nemendur geta fengið metið nám utan skólans sem 2 kennslustundir á viku í staðinn fyrir valgrein. Ef nemandi stundar tvær íþróttagreinar eða nám utan skóla má fá 4 kennslustundir metnar.
Til að staðfesta þátttöku í utanskólavali þarf nemandi að skila sérstöku eyðublaði sem skólinn leggur til með undirskrift foreldris. Nemendur og foreldrar bera fulla ábyrgð á þessum skilum til að starfið fáist metið.
Foreldrar þurfa að tilkynna veikindi gegnum Mentor eða á skrifstofu skólans í síma 555 1546 fyrir 8:30. Ef það er ekki gert er litið svo á að um óheimila fjarvist sé að ræða. Standi veikindi yfir í nokkra daga á að tilkynna þau fyrir hvern dag.
Leyfi í 2 daga eða minna er hægt að tilkynna í Mentor, með tölvupósti eða hringja í skólann í síma 555 1546.
Leyfi fyrir meira en 3 daga þarf að tilkynna sérstaklega á vefsíðu skólans.
Stafrænar öryggismyndavélar eru utanhúss í skólanum og við suma innganga. Markmiðið er að hafa rafræna vöktun á skólabyggingunni og skólalóðinni í öryggisskyni og til varnar því að eigur séu skemmdar eða þeim stolið.
Upptökur eru einungis skoðaðar ef upp koma atvik varðandi eignavörslu eða öryggi einstaklinga, eins og þjófnaður, skemmdarverk eða slys. Heimild til skoðunar er aðgangsstýrð en myndefni er vistað að hámarki í 90 daga og eytt að þeim tíma loknum.
Vöktunin er útfærð í samræmi við lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Merkingar með viðvörunum um rafræna vöktun eru uppsettar á vöktuðu svæðunum.