Í Öldutúnsskóla eru 2 til 3 bekkjardeildir í hverjum árgangi. Í upphafi skólaársins 2023–24 voru um 630 nemendur í skólanum. Skólahverfi Öldutúnsskóla markast af Reykjanesbraut, Lækjargötu og Ásbraut. Börn hafa forgang í þann hverfisskóla þar sem þau eiga lögheimili en hægt er að sækja um skólavist í öðrum skólum. Sjá nánar um innritun í grunnskóla. Leiðarljós og stefna Öldutúnsskóla Leiðarljós skólans eru virðing, vellíðan og virkni. Stefna skólans Að leggja áherslu á jákvætt námsumhverfi þar sem nemendur fá tækifæri til að efla sig, styrkja sjálfsmynd sína og taka sífellt meiri ábyrgð á sjálfum sér og námi sínu, eftir því sem aldur og þroski þeirra gefur tilefni til. Skólastarfið mótist af nútímalegum vinnubrögðum og sé gefandi og skapandi. Stundaðir séu fjölbreyttir kennsluhættir sem koma til móts við þarfir nemenda með áherslu á styrkleika þeirra. Að veita nemendum þekkingu til undirstöðu fyrir frekara nám og starf. Að efla þá í sjálfstæðum vinnubrögðum og samvinnu sem mótist af virðingu og víðsýni gagnvart samferðafólki. Að stunda gagnkvæmt samstarf og upplýsingamiðlun milli heimilis og skóla sem styrki báða aðila í að búa börnunum góð námsskilyrði. Stefnur Áherslur skólans Jafnréttisáætlun Einelti meðal starfsfólks