8.bekkur vann að barnabókaverkefni sem er lokaverkefni í íslensku og hefur fest sig í sessi hjá okkur. Í verkefninu skapa nemendur allt efni sjálfir – þeir þróa hugmynd, velja sér þema eða boðskap, móta persónur, skipuleggja söguþráð og myndskreyta bókina. Ferlið er markvisst og skiptist í nokkur skref þar sem nemendur vinna hugmyndavinnu, gera hugarkort, skrifa drög og setja að lokum saman fullunna bók með texta og myndum. Lögð er áhersla á vandað málfar, góðan frágang og skapandi vinnubrögð. Í ár fengu nemendur sérstakan innblástur þegar rithöfundurinn Bergrún Íris Sævarsdóttir heimsótti skólann. Hún deildi reynslu sinni af ritun og skapandi ferli og kveikti sannarlega neistann hjá nemendum, sem sást vel í fjölbreyttum og metnaðarfullum verkefnum. Margir nemendur blómstra í þessari vinnu og nýta styrkleika sína á ólíkan hátt – hvort sem það er í skrifum, hugmyndavinnu eða myndrænni framsetningu. Verkefnið gefur þeim einstakt tækifæri til að sýna sjálfstæði, sköpunargleði og persónulegan stíl. Verkefninu lauk svo með skemmtilegum og hátíðlegum hætti þegar valinn hópur nemenda fékk að lesa upp úr bókunum sínum fyrir 1. bekkinga. Sú stund var bæði gefandi og eftirminnileg og undirstrikar mikilvægi þess að miðla sögum og gleðja aðra með eigin sköpun. Við hefðum getað valið ógrynni af frábærum barnabókum en ekki gafst tími í meira. Frábær afrakstur og mikið af hæfileikaríkum framtíðar höfundum í Öldutúnsskóla. Deila Tísta