Í Gulum september er lögð áhersla á að auka meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna með kærleika, aðgát og umhyggju að leiðarljósi. Þessi árstími er valinn vegna þess að Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga er 10. september og Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er 10. október. Við í Öldutúnsskóla tókum þátt í gula deginum og margir mættu í eða með eitthvað gult. Deila Tísta