Miðvikudaginn 21.október ætlar Aldan í samstarfi við skólann að halda foreldraopnun í Öldunni milli 19:00 og 22:00 fyrir foreldra barna í 7.-10.bekk. Við fáum spennandi gesti til okkar í heimsókn til að ræða áhættuhegðun ungmenna og hvernig skal sporna gegn henni auk þess að gefa ykkur tækifæri á að kíkja á aðstöðuna okkar í Öldunni og hitta starfsfólkið. Með því að mæta vinna foreldrar sér inn 2 auka mætingastig í félagsmiðstöðinni fyrir unglinginn sinn. Dagskrá kvöldsins: 19:00 – Húsið opnar og nemendaráðið selur vöfflur og kaffi til styrktar nemendafélagsins. 19:30 – Erindi frá Jónu Rán forvarnarfulltrúa bæjarins, Kristínu Blöndal kennslufulltrúa mannréttinda og Götuvitanum. 21:00 – Frjáls tími fyrir spjall og félagsmiðstöðvastemningu Fullkomið tækifæri til að koma saman, kynnast betur og læra um forvarnir! Deila Tísta