Félag læsisfræðinga (FLÍS) verður með opinn fræðslufund um lesfimi fyrir kennara, foreldra og aðra áhugasama. Fundurinn verður á Zoom þriðjudaginn 6. október kl. 19:30 – 20:10. Auður Soffíu Björgvinsdóttir, læsisfræðingur og lektor við Menntavísindasvið HÍ, og Guðbjörg Rut Þórisdóttir, læsisfræðingur og ráðgjafi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, munu fjalla um lesfimi, hvers vegna hún er metin í grunnskólum, hvernig niðurstöður eru birtar og hvernig kennarar og foreldrar geta nýtt niðurstöðurnar í samtali. Hér er linkur á fundinn Deila Tísta