Hafnarfjarðarbær fékk hana Önnu Laufeyju Stefánsdóttur, tölvunarfræðing og sérfræðing í þróun snjallforrita, til að innleiða verkefnið Stafræn velferð í skólasamfélagi. Hún heldur úti heimasíðunni stafraenvelferd.is.

Í september hitti hún alla nemendur í Öldutúnsskóla, frá 1. upp í 10. bekk og var með fræðslu sem var sniðin að aldri nemenda.

Til að tengja saman heimili og skóla þá var í boði vinnustofa fyrir foreldra og nemendur í 7., 8., og 9. bekk en þar var lögð áhersla er á opið samtal, samvinnu og mótun raunhæfra viðmiða sem henta daglegu lífi.

Í lok vinnustofunnar fengu fjölskyldur með sér ,,Heimilisreglur“ vinnublað sem á að styðja við áframhaldandi samtal innan heimilisins og hjálpa fjölskyldum að móta eigin viðmið um skjánotkun.

Hér fyrir neðan getur þú nálgast skjöl sem að innihalda samantekt yfir fræðslu Önnu Laufeyjar ásamt eyðublaði sem getur nýst þinni fjölskyldu til að setja ykkar eigin heimilisreglur þegar kemur að stafrænni velferð.

Heimilisreglur
Samantekt fyrir foreldra – yngri deild
Samantekt fyrir foreldra – miðdeild
Samantekt fyrir foreldra – unglingadeild