Dagana 2.-6. nóvember er vinavika í Öldutúnsskóla og að þessu sinni er yfirskrift vikunnar „Virðing“. Við leggjum sérstaka áherslu á jákvæð samskipti, vináttu og hvernig við sýnum hvert öðru virðingu í daglegu lífi.

Þemað fléttast inn í fjölbreytt viðfangsefni í öllum námsgreinum. Í öllum umsjónarhópum verða haldnir bekkjarfundir þar sem nemendur ræða virðingu og samskipti. Vinabekkir hittast einnig og eiga góða stund saman, en markmiðið er að þau tengsl haldi áfram að styrkjast yfir veturinn.

Föstudagurinn 6. nóvember verður uppbrotsdagur og „Grænn dagur“, þar sem vinabekkir verja deginum saman. Athugið að þann dag er skólatími allra nemenda sá sami:

– Skólinn hefst kl. 08:10.
– Skóladegi lýkur kl. 11:30.
– Selið opnar kl. 11:30.

Við hvetjum ykkur til að ræða við börnin heima um virðingu og vináttu. Það getur til dæmis verið gott að velta saman fyrir sér hvernig við sýnum virðingu í orðum og athöfnum og hvernig við getum stuðlað að því að öllum finnist þau tilheyra hópnum.

Við hlökkum til góðrar viku þar sem við ræktum tengslin og höfum gildin okkar að leiðarljósi: virðingu, virkni og vellíðan.