Undanfarnar vikur hafa nemendur í 9. bekk ferðast aftur til sögualdar í gegnum Laxdælu. Lestrinum fylgdi umfangsmikil verkefnavinna þar sem nemendur túlkuðu persónur, greindu átök og tengdu fornan texta við eigin reynsluheim. Niðurstaðan er fjölbreyttur og vandaður afrakstur sem sýnir að gömul saga getur enn vakið sterkar umræður og nýjar hugmyndir. Endum þetta á frægum orðum Guðrúnar Ósvífursdóttur ,,Þeim var ég verst er ég unni mest“ Deila Tísta