Síðustu daga hafa nemendur og starfsfólk brallað ýmislegt.  Farið á sinfóníutónleika, útivistarvalið fór í hjóltúr, 3. bekkur gert falleg verkefni í textílmennt, kisu langaði að vera með í UT smiðju, einbeittir nemendur í 2. bekk að læra fingrasetningu, nýtt góða veðrið í útikennslu og samþættingu námsgreina, heimsótt glæsilega bókasafnið okkar í Firðinum og gert verkefni í upplýsingalæsi og komið í sögustundir á skólabókasafninu.

Hér fyrir neðan má sjá skemmtilegar myndir frá starfinu í Öldutúnsskóla.