Námssamtöl fara fram þriðjudaginn 13. október 2026. Nemendur mæta ásamt foreldrum eða forráðamönnum í samtal til umsjónarkennara.
Skráning í Mentor er opin frá 8. til 12. október. Við biðjum ykkur að bóka tíma innan þess tímabils.
Foreldrar sem þurfa túlk fá upplýsingar um samtalstíma frá deildarstjóra stoðþjónustu og eiga því ekki að bóka tíma sjálfir í Mentor.
Ef þið óskið eftir samtali við aðra kennara eða starfsfólk skólans getið þið sent viðkomandi tölvupóst og bókað tíma.
Samtalsblað verður sent heim með nemendum föstudaginn 9. október. Við hvetjum ykkur til að fara yfir það saman fyrir samtalið. Nemendur koma með útfyllt blað í samtalið eða skila því til umsjónarkennara daginn áður.
Umsjónarkennarar veita nánari upplýsingar um undirbúning og framkvæmd samtalanna.
Við hlökkum til að hitta ykkur og ræða nám og líðan barnanna.