Öldutúnsskóli tók þátt í treyjudeginum og endaði daginn á að mynda hring um skólann sinn. Hér má sjá umfjöllun á RUV um viðburðinn.

Á Treyjudeginum klæðist fólk uppáhaldstreyjunni sinni til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra. Dagurinn hefur verið haldinn í Danmörku, Svíþjóð og Noregi um árabil. Börn með krabbamein, styrktarfélag stendur að deginum. Félagið styður börn með krabbamein og fjölskyldur þeirra með fjölbreyttum hætti.