Fimmvörðuháls/Þórsmerkurvalið fór í sína árlegu ferð í vikunni. Vegna slæms veðurs á Fimmvörðuhálsi var ákveðið að fara beint inn í Bása í Goðalandi þar sem við gistum. Við keyrðum í rigningu, þoku og súld alla leið frá Hafnarfirði að Seljalandsfossi, Þá byrjaði að birta til og þegar við vorum komin inn í mörk var allt skrjáfa þurrt og fínt. Við lögðum af stað í gönguna upp úr kl. 11:00 og vorum við kennarar búin að skipuleggja góðan 20 km hring inn í Þórsmörk, þar sem við fórum meðal annars inn í Langadal, upp á Valahnjúk, inn í Húsadal og Tindafjallahringinn áður en við héldum aftur til baka í Bása. Nemendur stóðu sig mjög vel, voru jákvæð og hress (að mestu ;), auk þess sem þau sýndu mikla þrautseigju, því þetta var mjög krefjandi ganga, upp og niður fjöll, hóla og hæðir, hæðametrarnir enduðu yfir 1000 metra. Veðrið lék við okkur þangað til rétt í lokin þar sem byrjaði að rigna, við komum því blaut, þreytt og svöng til baka. Þegar búið var að fara í sturtu og þurr föt voru nokkrir vaskir10. bekkingar tóku að sér að grilla ofan í liðið. Nemendur fengu svo frjálsan tíma fram að háttatíma. Morgunin eftir gekk mjög vel að pakka og koma okkur af stað, heimferðin gekk vel og vorum við kennarar sátt með ferðina og vonum við að það hafi nemendur verið sömuleiðis. Deila Tísta