Halldóra kennari 4. K kom með geitungabú í skólann sem vakti mikla forvitni hjá nemendum. Þegar þau opnuðu búið kom í ljós að þar leyndust fullt af geitungum ásamt eggjum. Nemendur fengu að skoða búið vel, koma við það og sjá í návígi hvernig það er byggt upp. Þetta vakti mikla lukku og ekki síður forvitni, enda ekki á hverjum degi sem maður fær tækifæri til að skoða geitungabú svona vel.

En fjörið var ekki búið þar! Litli hvolpurinn hennar Halldóru, hún Nala, kíkti líka í heimsókn og vakti að sjálfsögðu mikla kátínu. Hún fékk nóg af klappi og athygli frá krökkunum og naut sín vel í öllu fjörinu.

Sannarlega viðburðaríkur og skemmtilegur dagur í 4. K.