Langar þig út úr skjátímanum og inn í sönggleðina? Taktu þátt í kórastarfinu í vetur! Vissuð þið að söngur fer minnkandi hjá börnum og ungmennum á Íslandi? Vissuð þið að það er meiri áskorun en áður að fá börn til að gleyma sér í sönggleði? Vissuð þið að söngur hefur víðtæk og jákvæð áhrif á manneskjuna? Hann hefur áhrif á: Stærðfræðigetu Tungumálagetu Lestrargetu Málskilning Tjáningu Samhygð Sálina Einbeitingu Þrautseigju Þetta eru ekki einungis getgátur hent fram í gáleysi heldur staðreyndir, studdar af gagnreyndum rannsóknum á áhrifum söngs á einstaklinga í samfélagi og áratuga reynslu af vinnu með börnum í söng. Víðsvegar á Norðurlöndum hafa stjórnvöld hafið átak til að efla söng á öllum stigum – almennan söng í stofnunum allt frá leikskólum til öldrunarheimila. Í Hafnarfirði eru einungis tveir skólakórar, þar á meðal hér í Öldutúnsskóla. Það má því segja að nemendur hér og forráðamenn séu stálheppnir að hafa aðgang að svona auðlind. Ég mæli eindregið með því að forráðamenn nýti sér þetta og sendi börnin sín í kór. Kór Öldutúnsskóla er elsti starfandi barnakór landsins og hefur verið mjög virkur og öflugur frá upphafi. Fyrir þremur árum hófst þróun sem er áhyggjuefni, þar sem nýliðun í eldri kórinn stöðvaðist! Áður fyrr voru nemendur úr fimmtu bekk fjölmennasti árgangurinn, en sá hópur hefur ekki skilað sér upp í kórinn undanfarið, nema með örfáum undantekningum. Þetta er alvarlegt. Ég hef haft það á tilfinningunni að kórinn sé orðinn hálfgert „húsgagn“ í skólanum – fólk átti sig ekki á því einstöku tækifæri sem kórstarfið gefur börnum til að þroska margvíslega eiginleika sem erfitt er hægt að nálgast annars staðar. Kórstarfið fer eins langt frá skjátímanum og hægt er – það er krefjandi fyrir ungmennin. Þar þarf að horfa í augu, einbeita sér að tóninum, öndun og hlustun. Þetta krefst oft mikillar einbeitingar og stundum eru vinnubrögðin hæg. Það er áskorun, en hún er mjög holl. Mig langar mikið til að fólk íhugi þetta og styðji og hvetji börn sín til kórstarfs. Einnig þegar börnin verða leið og nenna ekki á æfingar – það er eðlilegt, og þá þarfnast þau, eðli málsins samkvæmt, sérstakrar hvatningar. Viðburðir síðasta vetrar Síðasti vetur var stór í sögu kórsins – enda var kórinn að halda upp á 60 ára afmæli sitt og gerði það með pompi og pragt! 21. nóvember: Sérstök afmælisveisla í skólanum þar sem opnuð var sögusýning og sungið og glaðst með núverandi og fyrrverandi kórfélögum. Jólatónleikar: Veglegir jólatónleikar voru haldnir að vanda í desember. Söngferð til Ítalíu: Í maí fór kórinn í vel heppnaða söngferð til Ítalíu og söng sig þar inn í hug og hjörtu áhorfenda í troðfullri kirkju í Maderno. 60 ára afmælistónleikar: Ekki nóg með það heldur hélt kórinn stórkostlega tónleika í Norðurljósum sem voru uppseldir og rúmlega það. Þar komu fram um 100 söngvarar frá öllu tímabili kórsögunnar. Þrír kórstjórar komu við sögu á afmælisárinu: Egill Friðleifsson, stofnandi kórsins og stjórnandi til rúmlega 40 ára, Brynhildur Auðbjargardóttir, kórstjóri frá 2005, og Björg Birgisdóttir sem mun leiða kórinn í vetur í fjarveru Brynhildar. Björg Birgisdóttir ólst upp í Kór Öldutúnsskóla, er með söngkennarapróf og hefur starfað í kórastarfi hjá kórum Domus Vox bæði sem söngvari og kennari. Hún er mikill hvalreki fyrir skólans mun bráðlega senda út æfingatíma kórsins – en tekið skal fram að eldri kórinn (5.–10. bekkur) æfir í Ástjarnarkirkju tvisvar í viku en yngri kórinn (3.–4. bekkur) mun æfa í skólanum einu sinni í viku. Fylgist vel með fréttum um æfingatíma! Með ósk um góða þátttöku nemenda í kórastarfinu í vetur, Brynhildur Auðbjargardóttir Deila Tísta