Litli kór
3. -4. bekkur æfir á þriðjudögum kl. 13:30 – 14:15 í stofu 39. Hægt er að skrá þau í kór með því að senda Björgu kórstjóra tölvupóst Einnig geta þau bara mætt á fyrstu æfingu og þá mun Björg skrá þau í kórinn.
ATH! Ef börnin ykkar eru í Selinu eftir skóla á þessum dögum verðið þið að láta starfsfólk þar vita að börnin ykkar séu í kórnum.
Fyrsta æfing litla kórs verður þriðjudaginn 1. september kl. 13:30 í stofu 39.
Stóri kór
Æfir tvisvar í viku í Ástjarnarkirkju. Miðvikudögum frá 15:15 – 17:15 og á fimmtudögum frá 14:30 – 16:00
Miðvikudagsæfingarnar eru oftast hópaskiptar (hver söngrödd í 40 mínútur) nema í upphafi annar og ávallt vikurnar fyrir tónleika eða gigg. Þegar við höfum samæfingar á miðvikudögum þá eru æfingarnar í einn og hálfan tíma – Því bið ég um að ef hægt er að skipuleggja aðrar tómstundir utan þess tíma, að það sé gert.
Fimmtudagsæfingarnar eru ávallt einn og hálfur tími.
Krakkarnir þurfa þá að koma sér sjálf með strætó til og frá æfingu á miðvikudögum, en á fimmtudögum fer rúta frá Öldutúnsskóla klukkan 14:20.
Fyrsta æfing stóra kórs verður fimmtudaginn 3. september kl. 14:30 í Ástjarnarkirkju.