Í upphafi skólaárs er gott að fara yfir reglur skólans um hjól, hlaupahjól og bifhjól bekkur Samkvæmt 40. grein umferðalaga mega nemendur yngri en 7 ára ekki vera ein á reiðhjóli í umferðinni nema með leiðsögn og undir eftirliti aðila sem hefur náð 15 ára aldri. Vegna þessa mega nemendur í 1. bekk ekki ferðast á reiðhjóli til og frá skóla nema undir eftirliti þess sem er 15 ára eða eldri. Nemendur sem koma á hlaupahjóli í skólann læsa hjólum sínum á skólalóð. Merkja þarf hjólin. Hjólin má ekki nota á skólatíma. Foreldrar bera ábyrgð á hlaupahjólum nemenda. – 4. bekkur Nemendum í þessum árgöngum er heimilt að hjóla í umferðinni samkvæmt umferðalögum. Ef foreldrar kjósa að senda börnin sín í skólann á hjóli þá er það á þeirra ábyrgð. Reiðhjólum og hlaupahjólum skal leggja í hjólagrindur og læsa. Hjólin má ekki nota á skólatíma. Foreldar og nemendur bera ábyrgð á hjólunum. – 7. bekkur Nemendum í þessum árgöngum er heimilt að koma á hjólum í skólann. Reiðhjólum og hlaupahjólum skal leggja í hjólagrindur og læsa. Heimilt er að nota hjólin í frímínútum á malbikaða vellinum við hliðina á Seli en eingöngu á því svæði. Einnig er heimilt að fara á hjóli í íþróttir og sund. Nemendur og foreldrar bera ábyrgð á hjólunum. Óheimilt er að koma á rafhjólum í skólann. Samkvæmt lögum er óheimilt að vera á slíkum hjólum fyrr en 13 ára aldri er náð https://island.is/rafmagnshlaupahjol. Í Öldutúnsskóla mega nemendur ekki koma á rafhjólum í skólann fyrr en í 8.bekk. 8.- 10. bekkur Nemendum í þessum árgöngum er heimilt að koma á hjólum í skólann. Reiðhjólum og hlaupahjólum skal leggja í hjólagrindur og læsa. Hjólin má ekki nota á skólatíma. Þó er heimilt að nota hjólin í frímínútum á malbikaða vellinum við hliðina á Seli en eingöngu á því svæði. Einnig er heimilt að fara á hjóli í íþróttir og sund. Nemendur og foreldrar bera ábyrgð á hjólunum. Nemendum sem eru orðnir 13 ára er heimilt að koma á léttu bifhjóli í flokki 1 í skólann en verða að fylgja reglum sem gilda um notkun slíkra hjóla. Það er stranglega bannað að vera á slíkum hjólum á skólalóð. Allir nemendur eiga að nota viðeigandi öryggisbúnað eins og hjálm. Ekki er heimilt að geyma hjól eða hlaupahjól inni í skólanum. Deila Tísta