Kór Öldutúnsskóla hélt stórkostlega afmælistónleika í Norðurljósasalnum í Hörpu í tilefni af 60 ára afmæli kórsins. Fram komu bæði Litli kórinn og Kór Öldutúnsskóla, auk fjölda fyrrverandi kórfélaga sem sameinuðust á sviði af þessu tilefni. Þar á meðal voru Erla Jónatans, Margrét Eir, Hanna Björk, Björg Birgis, Erla Mist, Guðrún Árný, Sigríður Tinna, Steiney og fleiri.

Við þökkum Brynhildi og Agli fyrir þeirra ómetanlega framlag til kórstarfsins og þann metnað og kærleika sem þau hafa lagt í störf sín.

Tónleikarnir voru sannarlega eftirminnileg hátíðarstund fyrir núverandi og fyrrverandi kórfélaga, fjölskyldur þeirra og alla gesti.