Krakkarnir í 1. bekk hafa verið að vinna verkefni um líkamann síðustu vikur. Í gær var uppskeruhátíð og þvílík uppskera. Nemendur eru búnir að vera virkilega, áhugasamir, vinnusamir og duglegir.  Foreldrar komu í heimsókn í gær og fengu kynningu frá nemendum. Allir komu með veitingar og það var haldið heljarinnar Pálínuboð þegar sýningunni var lokið.